Harmónikur eru fáanlegar í ýmsum stærðum og gerðum og framleidd eru viðeigandi hljóðfæri fyrir alla aldurshópa frá um það bil 5 ára aldri. Harmoníkur eru ýmist með hljómbassa eða tónbassa og hnappaharmónikur eru framleiddar með þrenns konar gripakerfi. Miðað er við að nemendur stundi nám á hnappaharmoníku með tónbassa. Minnstu hljóðfærin er hægt að fá leigð hjá skólanum. Nemandinn leikur einn með kennara sínum á fyrstu stigum námsins, síðan eykst möguleikinn á að taka þátt í samspilsverkefnum.
Hér má lesa um námskrá, námsmat og áfangapróf.
Heilt nám 2x 30 mín á viku (einkanám) |
66% nám 2x 20 mín á viku (einkanám) |
Halldór hefur kennt á harmóniku í meira en 10 ár, á Akranesi og höfuðborgarsvæðinu. Hann lærði hjá Guðmundi Samúelssyni í Tónlistarskólanum í Grafarvogu og lauk þaðan framhaldsprófi árið 2012. Halldór hefur spilað með Harmónikukvintettinum í Reykjavík og hefur spilað t.d. á Nótunni og á Þjóðlagahátíð á Siglufirði.
© 2024 Tónskólinn í Reykjavík