Nemendur á grunn- og miðstigi fá einn tíma á viku í tónfræði og tónheyrn. Nemendur á framhaldsstigi fá klukkustund í hljómfræði, tónheyrn og tónlistarsögu. Mælst er til að nemendur hefji tónfræði samhliða 5. bekk í grunnskóla.
Tónfræði: Í grunnnámi er kennd hefðbundin tónfræði byggð á Ópus tónfræðibókum I-III. Í miðnámi er stuðst við Aagot verkefnahefti og Robert Starer hrynæfingar.
Hljómfræði: Kennd er klassísk hljómfræði fyrir byrjendur. Námskeiðið varir tvo vetur. Kennslan felst í fyrirlestrum og æfingum sem að mestu leyti fara fram í kennslustund. Próf fara fram að vori.
Tónlistarsaga: Kennd er saga klassískrar tónlistar frá miðöldum til vorra tíma. Kennslan felst í fyrirlestrum sem sumpart eru haldnir af kennara og sumpart af nemendum. Jafnframt er hlustað á tóndæmi. Próf fara fram að vori.
Hér má lesa um námsmat í tónfræði.
Rakel Axelsdóttir, grunnnám, tónfræði 1-3
Gunnar Karel Másson, miðnám og framhaldsnám
Kennslutímar:
| Tónfræði 1 grunnnám | Fimmtudagar kl. 15:00-15:55 |
| Tónfræði 2 grunnnám | Fimmtudagar kl. 16:00-16:55 |
| Tónfræði 3 grunnnám | Fimmtudagar kl. 17:00-17:55 |
| Tónfræði 4 miðnám | Miðvikudagar kl. 16:20-17:15 |
| Tónfræði 5 miðnám og framhald | Miðvikudagar kl. 17:20-18:15 |
Þorgrímur er menntaður tónlistarmaður og upptökustjóri og hefur sérhæft sig á sviði sígildrar tónlistar og jazztónlistar. Hann lauk námi við tónmeistaradeild Tónlistarháskólans í Kaupmannahöfn sumarið 2020 en lauk áður prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands (2015) og burtfararprófi í jazzgítarleik frá Tónlistarskóla FÍH (2017). Síðustu ár hefur Þorgrímur starfað við upptökur samhlíða kennsku í gítarleik og hljóðvinnslu.