Orgelnám getur hafist við 8 til 9 ára aldur en einnig er hægt að byggja orgelnám á fyrra píanónámi. Mikilvægt er að nemandi hafi píanó eða rafmagnspíanó heimafyrir til heimaæfinga. Í orgelnáminu kynnast nemendur orgelverkum frá ólíkum tímabilum og í ýmsum stíltegundum. Einnig þjálfast nemendur í að leika undir og leiða almennan safnaðarsöng á orgel og í leik af fingrum fram. Orgelnámið fer fram í samvinnu við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og taka nemendur þátt í barnamessum. Samstarfið veitir nemendum innsýn í starf kirkjunnar, heimili orgelsins þar sem hljóðfærið á sér þúsund ára sögu. Tónskóli Þjóðkirkjunnar tryggir nemendum aðgang að orgeli og fer námið fram í Háteigskirkju.
Hér má lesa um námskrá, námsmat og áfangapróf.
| Heilt nám 2x 30 mín á viku (einkanám) |
| 66% nám 2x 20 mín á viku (einkanám) |
| 50% nám 1x 30 mín á viku (einkanám) |
Guðný Einarsdóttir stundaði píanónám frá unga aldri og lauk hún prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og orgelnámi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem aðalkennari hennar var Martin H. Friðriksson. Hún lauk mastersgráðu í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn og samhliða náminu stjórnaði hún kammerkórnum Stöku, en hún er ein af stofnendum hans. Að loknu námi í Kaupmannahöfn var Guðný organisti danska safnaðarins í París en auk þess stundaði hún framhaldsnám í orgelleik þar í borg. Guðný hefur komið fram á Íslandi og erlendis sem einleikari, meðleikari og kórstjóri og stundað kennslu í orgel- og píanóleik. Hún hefur gefið út tvo geisladiska með orgelverkum, annar þeirra, orgelverk Jóns Nordal, var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Guðný samdi söguna Lítil saga úr orgelhúsi sem er tónlistarævintýri fyrir börn um undraheima pípuorgelsins. Hún hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir ýmis félagasamtök og Þjóðkirkjuna og setið í ýmsum nefndum m.a. Sálmabókarnefnd Þjóðkirkjunnar. Hún gegnir nú stöðu organista við Grafarvogskirkju í Reykjavík og er jafnframt deildarstjóri við Tónskóla þjóðkirkjunnar.