Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna

Persónuupplýsingar

Persónuupplýsingar sem safnað er beint frá þér í gegnum skráningar eru veittar af fúsum og frjálsum vilja. Þér er ekki skylt að veita þessar persónuupplýsingar og getur afturkallað þær hvenær sem er. Afleiðingin af því að gefa ekki upp nauðsynlegar persónuupplýsingar verður að ekki er hægt að afgreiða umsókn þína. Persónuupplýsingarnar eru eingöngu notaðar í þeim tilgangi að vinna með skráningu í skólann sem og samskipti um þátttöku í, og mögulegri söfnun á, síðari verkefnum. Persónuupplýsingar hins skráða eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er til þess að hægt sé að sinna þeim tilgangi sem lýst er hér fyrir ofan. Hinum skráða er kunnugt um að hann eða hún getur kynnt sér lög og reglur um persónuvernd á https://www.personuvernd.is/

Vefkökur

Vefkökur eru litlar upplýsinga- og textaskrár sem notaðar eru til að vefsvæði virki sem skyldi og til að safna tölfræðilegum upplýsingum. Þær eru vistaðar í vafra eða tæki einstaklinga þegar skoðaðar eru vefsíður en einstaklingar geta eytt þeim út að vild. Vefkökur vista ekki persónuupplýsingar eins og nöfn, netföng, símanúmer eða kennitölur.

tonrey.is notar bæði vefkökur frá fyrsta aðila og þriðja aðila. Vefkökur frá fyrsta aðila eru vefkökur sem senda eingöngu upplýsingar til Tónskólans í Reykjavík en vefkökur frá þriðja aðila eru tilkomnar vegna þjónustu sem skólinn notar.

Nauðsynlegar kökur

Sumar kökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vefsíðan mun ekki virka rétt án þessara vafrakaka og eru þær því sjálfkrafa virkar og ekki er hægt að hafna þeim.

Tölfræðikökur

Tölfræðikökur hjálpa okkur að bæta vefsíðuna með því að safna og greina upplýsingar um notkun hennar.

Markaðskökur

Markaðskökur eru þriðja aðila vefkökur sem eru notaðar til að rekja slóð gesta á milli vefsíða sem gerir auglýsendum kleift að birta viðeigandi og grípandi auglýsingar.

Tónskólinn í Reykjavík notar Google Analytics og Facebook Pixel til að deila upplýsingum með samstarfsaðilum svo hægt sé auglýsa viðburði og til að fá upplýsingar um hvaðan einstaklingurinn kom inn á vefsíðuna. Þessar upplýsingar má nota til að birta einstaklingum auglýsingar sem skólinn metur svo að einstaklingur hafi áhuga á að sjá og til að sérsníða þau skilaboð sem birt eru einstaklingum. Tónskólinn deilir ekki upplýsingum sem eru persónugreinanlegar með þessum aðilum eða vefsíðum þriðja aðila sem birta auglýsingar á vegum skólans.