Salur

Salur skólans er leigður út við sérstök tilefni. Salurinn nýtist fyrir ýmis konar veislur, tónleika eða fundi sem standa eigi lengur en til kl. 22:00 á kvöldin. Þegar kennsla er í skólanum samskæmt skóladagatali er salurinn einungis leigður út á kvöldin og um helgar. Salurinn hentar einnig í ýmis námskeiðshöld sem tengjast dans, jóga eða tónlist. Þá er einnig mögulegt að leigja önnur kennslurými skólans. 

Salurinn tekur 80 manns í sitjandi borðhaldi eða tónleikauppstillingu en um 120 manns í standandi móttöku. Tvö salerni eru innangeng og fatahengi. Í eldhúsi er ofn, uppþvottavél, ísskápur, frystir, stór kaffivél, kaffikönnur, vatnskönnur, allt leirtau og hnífapör, kertastjakar og blómavasar. Útleiguverð fyrir veislur er 85.000 kr. án þjónustufólks. Mögulegt er að fá salinn að kveldi fyrir veislu til að skreyta. Skila skal salnum snyrtilegum, tilbúnum fyrir lokaþrif.

Sendið fyrirspurn um leigu á tonrey@tonrey.is.