Skólareglur

Skólasókn og stundvísi

Ef nemandi  forfallast ber að tilkynna fjarveru í Speedadmin appinu sem er skólaumsjónarkerfi skólans eða með tilkynningu beint til kennara. Að gefnu tilefni þarf að taka fram að ef nemandi getur einhverra hluta vegna ekki mætt í sína tíma, getur skólinn ekki bætt þá upp.

Ef kennari veikist og tími fellur niður, tilkynnir kennari sína fjarveru með tölvupósti eða símaskilaboðum til að koma í veg fyrir óþarfa ferð. Ekki er skylt að bæta upp einstaka kennslustundir sem falla niður vegna veikinda kennara. Sé kennari forfallaður í hálfan mánuð samfleytt útvegar skólinn annan kennara eða bætir upp þær kennslustundir sem hafa tapast.

Ef nemendur eru lasnir, sækja þeir ekki tónlistartíma til að forðast að smita aðra nemendur eða kennara. Nemanda ber að mæta stundvíslega í allar kennslustundir. Síendurteknar fjarvistir án leyfis geta varðað brottvikningu úr skólanum.

Umgengni

Nemendur skulu ganga vel um eigur skólans, fara úr og ganga frá skóm í anddyri og hengja yfirhafnir á snaga. 

Framkoma

Nemendur, samnemendur og kennarar sýna gagnkvæma virðingu og kurteisi. Kennarinn er þó alltaf leiðtoginn og nemendur fara eftir tilmælum kennara. Hávaði á gangi skólans truflar kennslu og því ber nemendum að sýna góða hegðun á meðan beðið er eftir tíma. 

Hljóðfærin

Nemendur sem taka á leigu hljóðfæri frá skólanum ber að fara vel með þau. Óheimilt er að lána hljóðfærin. Viðhald hljóðfærisins á lánstímanum og skemmdir eru á kostnað nemanda eða foreldris.

Skilmálar

Skilmálar skólans eru samþykktir við skráningu í gegnum Speedadmin. Hér má lesa skilmála skólans.