Skólaslit og innritun

Nú er skólinn kominn í frí en skrifstofa opnar á ný um miðjan ágúst. Fyrsta lota innritunar er yfirstaðin en mögulega verða einhver pláss laus til úthlutunar í byrjun júlí eða ágúst. Enn eru laus pláss í forskólann en hér má lesa um tímasetningar og kennslustaði forskólans.

Kennsla hefst á ný 25. ágúst en þegar skólaupphaf nálgast munu kennarar hafa samband við nemendur og festa með þeim tíma þegar stundaskrár liggja fyrir. Allir upplýsingar um kennara má finna á Speedadmin skólaumsjónarkerfi og á heimasíðu skólans.

Við þökkum fyrir liðið skólaár þar sem nemendur skólans komu fram á yfir 70 viðburðum og 20 nemendur luku áfangaprófum. Við höldum áfram að setja okkur spennandi markmið, leika okkur og hafa gaman.