Nýr flygill í salnum!

Tónskólinn í Reykjavík hefur bætt við glæsilegum nýjum flygli í tónleikasalinn, sem markar spennandi tímamót fyrir bæði nemendur og kennara.

Hljóðfærið mun þjóna lykilhlutverki á tónleikum og í kennslu. Hljóðfærið er gætt ríkum og litríkum tón og góðum áslætti sem mun ekki einungis gera tónlistarflutning betri heldur einnig gefa nemendum reynslu við að spila á hágæða hljóðfæri.

Með viðbót hljóðfærisins vonast Tónskólinn til að eflast enn frekar sem miðstöð tónlistarnáms og tónlistarflutnings.

Hér má heyra Andrew Yang, sem valdi hljóðfærið, spila á hann.