Upptakturinn fer af stað á nýju ári. Upptakturinn er tónsköpunarverkefni fyrir börn og ungmenni í 5. – 10. bekk. Börn og ungmenni sem hafa áhuga á að skapa tónlist geta sótt um að vera með. Það gera þau með því að senda inn hugmynd að lagi eða tónsmíð í því formi og í þeim stíl sem þau kjósa. Valnefnd tekur við innsendum hugmyndum og velur úr 13 tónsmíðar eða lagahugmyndir. Þau eru svo þróuð áfram af tónsmíðanemendum við Listaháskóla Íslands ásamt lagahöfundunum ungu. Að loknu því ferli verða nýju tónsmíðarnar fluttar af starfandi tónlistarfólki á tónleikum í Hörpu sem fram fara 22. apríl 2026. RÚV tekur tónleikana upp og sendir þá út ásamt viðtölum við ungu tónskáldin.
Skilafrestur er til og með sunnudagsins 22. febrúar 2026.
Mikilvægt að vita:
- Umsóknir skal senda inn á upptakturinn@harpa.is
- Lagahugmyndina má senda sem upptöku (mp3), á nótum og í óhefðbundnu formi (teikningu eða texta).
- Lengd tónverks skal vera 1-5 mínútur að hámarki.
Eftirfarandi upplýsingar skulu fylgja umsókn:
- Nafn barns / ungmennis
- Heimilisfang og sveitafélag
- Skóli
- Bekkur
- Símanúmer og netfang hjá forráðamanni
- Titill verks
- Skilafrestur er til og með sunnudagsins 22. febrúar 2026.