Skólastarf hafið

Skólastarfið hefur farið vel af stað og flestir búnir að festa varanlega tíma með kennara fyrir veturinn. Þátttaka í tónfræði er góð og næstum fullt í alla forskólahópa. Söngnemendum fer fjölgandi og söngmenning á mikillri uppleið. Nemendur marka sér nú vörður fyrir skólaárið og fjölmargir viðburðir framundan sem nemendur hefja nú undirbúning fyrir.