Skólárið 2024-25 er farið af stað

Nú er nýtt skólaár farið af stað og eftirvænting mikil. Nemendur fá í hendur ný verk og ný markmið. Sum eru að hefja tónlistarnám, aðrir reynslunni ríkari og sumir jafnvel að kynnast nýjum kennurum. Bjarni gítarkennari, Katalin píanókennari hafa látið af störfum eftir fjölda ára í kennslu við skólann. Við þökkum þeim fyrir samfylgdina og lærdóminn. Nýir kennarar við skólann eru Jónas Sen píanókennari, Kristófer Hlífar Gíslason gítar- og píanókennari og Valdís Gregory forskólakennari. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin.

Enn eru laus pláss í forskóla 1 í Bústaðakirkju og forskóla 2 í Grafarvogskirkju. Sjá nánar hér