Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskólanna

Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskólanna verður haldin víðsvegar um land þann 12. og 18. apríl.

Tónlistarskólarnir í Reykjavík verða með opið hús í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 18. apríl milli 11:00 og 15:30. Þrennir tónleikar verða yfir daginn kl. 11:00, 13:00 og 14:30. Tónlistarskólarnir kynna sig og bjóða upp á upp smiðjur og samtal.

Þátttökuskólar:
Allegro Suzuki Tónlistarskóli
Miðstöðin – rythmadeild Nýja tónlistarskólans og Tónmenntaskóla Reykjavíkur
Nýi tónlistarskólinn
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík
Söngskóli Domus Vox
Söngskólinn í Reykjavík
Söngskóli Sigurðar Demetz
Tónlistarskóli Árbæjar
Tónlistarskóli FÍH
Tónmenntaskóli Reykjavíkur
Tónskóli Eddu Borg
Tónskólinn í Reykjavík
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar

Ráðhúsið fyllist af tónlist og gleði, fjölbreytt dagskrá og öll velkomin

Tónlistarskólar landsins eru um 80 talsins og um 14.000 nemendur stunda nám innan tónlistarskólakerfisins. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda.

NÓTAN – uppskeruhátíð tónlistarskóla var fyrst haldin skólaárið 2009-2010 og er árlegur viðburður í kerfi tónlistarskóla á Íslandi. Að Nótunni standa Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Samtök tónlistarskólastjóra og Félag íslenskra hljómlistamanna.

Hátíðin er í senn faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið fyrir alla aðstandendur skólanna jafnt innan veggja þeirra sem utan.

Hér er viðburðurinn á facebook.