Samstarf um orgelnám í Reykjavík

Tónskólinn í Reykjavík og Tónskóli þjóðkirkjunnar hafa sameinað krafta sína um orgelnám ungmenna í Reykjavík. Tónskóli þjóðkirkjunnar hefur starfað allt frá stofnun embættis söngmálastjóra þjóðkirkjunnar árið 1941 og byggir orgelnámið því á áralangri reynslu. Orgelnámið mun fara fram í Háteigskirkju undir handleiðslu Guðnýjar Einarsdóttur orgelleikara. Hún lauk orgelnámi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og síðar Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Guðný gegnir nú stöðu organista við Grafarvogskirkju í Reykjavík og er jafnframt deildarstjóri við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Í orgelnáminu kynnast nemendur orgelverkum frá ólíkum tímabilum og í ýmsum stíltegundum. Einnig þjálfast nemendur í að leika undir og leiða almennan safnaðarsöng á orgel og í leik af fingrum fram. Samstarfið veitir nemendum innsýn í starf kirkjunnar, heimili orgelsins þar sem hljóðfærið á sér þúsund ára sögu.