Vortónleikar skólans í Grafarvogskirkju fara fram nú á laugardag, 9. maí kl. 11:00, 12:30 og 14:00. Á tónleikunum verða leikin mörg samleiksverkefni sem nemendur hafa unnið að á árinu sem og önnur einleiksverk.
Á skólaárinu voru haldnir 22 tónfundir og nemendur skólans komu fram á 50 tónleikum eða viðburðum við hin ýmsu tilefni. Þar á meðal Unglist – listahátíð barna, Foreldraföndri Fossvogsskóla, Upplestrarkeppninni og nýlega Nótunni sem var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ótrúlega margir gerðu sér leið niður í bæ til að hlýða á Nótuna og kynna sér starf skólanna. Skólinn tók þátt í Söngvavori á Barnamenningarhátíð í Hörpu þar sem hljómsveitir tónlistarskólanna léku undir söng leikskólabarna. Alls stigu um 1400 leikskólabörn og tónlistarnemendur á svið Eldborgar í Hörpu. Á undirbúningstímanum fengu leikskólabörn, að heimsækja tónlistarskólann, æfa með hljómsveit skólans og fá hljóðfærakynningu. Í ár voru sungin lög eftir Dr. Gunna við frábærar undirtektir.
Í haust voru haldnir spunatónfundir og á vorönn var haldin samspilsvika þar sem nemendum var boðið að sækja tíma hjá hvorum öðrum og prófa sig áfram í samleik eða hljómsetningu. Samspilsverkefni fengu svo að njóta sín á tónfundum, á Nótunni og vortónleikum. Allar þessar uppákomur kalla á mikinn undirbúning og skipulag og eiga kennarar og foreldrar mikið hrós skilið. Árangurinn stendur heldur ekki á sér og í vetur sláum við öll met í áfangaprófum en alls þreyta 8 nemendur miðpróf og 18 nemendur grunnpróf, samtals 26 áfangapróf. Á bakvið hvert grunnpróf mætti áætla 7 námsár og miðpróf að minnsta kosti tvö ár til viðbótar. Samanlagt mætti því segja að þessi 26 áfangapróf jafngildi 198 námsárum.
Við þökkum allt það góða samstarf sem við höfum átt í vetur við fjölda grunnskóla, Grafarvogskirkju, Bústaðakirkju, Barnamenningarhátíð, Tónskóla Sigursveins, Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Allegro Suzukitónlistarskóla, Tónskóla Eddu Borg og Menningarhúsin í Spöng og Úlfarsárdal.
Framundan er fjöldinn allur af tónleikum skólans. Forskólinn kemur fram á vorhátíðum í sínu hverfum en einnig verður fjöldinn allur af tónleikum í sal skólans.